Hjá Amaría finnur þú vörur í takmörkuðu upplagi, eldri vörur, vörur með breyttar umbúðir, vörur sem eru hættar í sölu eða eru hluti af lagerhreinsun. Allt er valið með það að markmiði að minnka sóun og nýta það sem þegar er til.

Amaría vinnur eingöngu með íslenskum birgjum. Þannig styð ég við nærumhverfið og tryggi að vörurnar komi úr traustu fagumhverfi.

Úrvalið er síbreytilegt og engin tvö innkaup eru eins. Þegar vara klárast, kemur hún oft ekki aftur.