Þjónustuskilmálar

Skilmálar Amaría

Upplýsingar um seljanda

Amaría

Rekstraraðili: Aðalheiður M. K. Sigmarsdóttir.                      

Kt: 030991-2309

Vsknr.: 131162

Netfang: amaria@amaria.is

 

Almennar upplýsingar

Amaría er outlet-verslun sem býður upp á vel valdar vörur í takmörkuðu upplagi. Vörurnar geta verið eldri vörur, með breyttar umbúðir, útlitsgallaðar vörur, hættar í sölu eða hluti af lagerhreinsun. Kaupandi skal vera upplýstur um sérstakt ástand vöru, til dæmis galla, áður en kaup eru gerð.

Þessir skilmálar gilda um öll viðskipti sem fram fara í netverslun Amaría, (hér eftir nefnd „seljandi“). Með því að ganga frá kaupum samþykkir kaupandi þessa skilmála. Mælt er með því að kaupandi lesi skilmálana vandlega áður en gengið er frá kaupum.

Verð og greiðslur

Öll verð eru gefin upp í íslenskum krónum (ISK) og eru með virðisaukaskatti.

Amaría áskilur sér rétt til að breyta verðum án fyrirvara.

Greiðslur fara fram með öruggum hætti í gegnum [Greiðslumiðlun, t.d. Kortaþjónustan, Valitor, Pei, o.fl.]. Upplýsingar um greiðslukort eru ekki vistaðar hjá seljanda.

Afhending vöru

Þegar kaupandi hefur gengið frá pöntun fær hann staðfestingu senda í tölvupósti. Pantanir eru afgreiddar eins fljótt og auðið er eftir að greiðsla hefur borist.

Sé vara ekki til á lager eða ef afhendingartími verður lengri en venjulega, mun seljandi hafa samband við kaupanda. Sendingarkostnaður bætist við pöntun nema annað sé tekið fram. Seljandi ber ábyrgð á vörunni þar til hún hefur verið afhent kaupanda.

Skil og endurgreiðslur

Skilafrestur er 14 dagar frá kaupdegi, í samræmi við lög um neytendakaup.Vara skal vera ónotuð, í upprunalegu ástandi og í óskemmdum umbúðum.Kaupandi greiðir sendingarkostnað við skilar.

Hægt er að skila vörum gegn inneign eða endurgreiðslu, eftir samkomulagi.

Undanþágur frá skilarétti:

*   Ekki er hægt að skila notuðum vörum.

*   Ekki er hægt að skila hreinlætis- eða snyrtivörum ef innsigli hefur verið rofið, af heilbrigðis- og hreinlætisástæðum.

Vörur sem keyptar eru á sérstökum afslætti eru ekki endurgreiddar, heldur er boðin inneign eða skipti fyrir aðra vöru.

Kaupandi ber kostnað af skilasendingu nema um gallaða eða ranga vöru sé að ræða.

Gallaðar vörur

Ef vara reynist gölluð skal hafa samband við Amaría án ótilhlýðilegrar tafar, helst innan 48 klukkustunda frá móttöku vöru, með tölvupósti á amaria@amaria.is.

Slík mál eru leyst fljótt og sanngjarnt í samræmi við lög um neytendakaup, með endurgreiðslu, inneign eða skiptum eftir atvikum, ef um verulegan galla er að ræða.

Takmarkað upplag

Flestar vörur hjá Amaría eru í takmörkuðu upplagi. Þegar vara klárast kemur hún oft ekki aftur. Myndir og lýsingar eru eins nákvæmar og mögulegt er, þó litir og útlit geti örlítið verið frábrugðin raunverulegri vöru.

Persónuupplýsingar

Amaría leggur ríka áherslu á persónuvernd. Upplýsingar sem viðskiptavinir veita eru eingöngu notaðar til að afgreiða pantanir og veita þjónustu, og eru ekki afhentar þriðja aðila nema samkvæmt lögum eða með samþykki viðskiptavinar. Nánari upplýsingar um vinnslu persónuupplýsinga er að finna í persónuverndarstefnu Amaría.

Ábyrgð

Amaría ber ekki ábyrgð á tjóni sem kann að hljótast af notkun vöru nema að því leyti sem gildandi lög um neytendakaup og almennar skaðabótareglureiga við. Ábyrgð nær ekki til eðlilegs slits, rangrar notkunar eða tjóns sem rekja má til atvika utan stjórnarsviðs Amaría.

Breytingar á skilmálum

Amaría áskilur sér rétt til að breyta skilmálum án fyrirvara. Uppfærðir skilmálar eru alltaf birtir á vefsíðu.

Öll ákvæði skilmálanna hér að ofan ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur milli aðila skal reynt að leysa hann í góðu samkomulagi. Ef ekki næst samkomulag er heimilt að vísa málinu til Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa eða annarra viðeigandi úrskurðarnefnda. Rísi mál vegna hans skal það tekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.