Sagan mín
Amaría er sprottin frá ástríðu fyrir fallegum hlutum, góðum gæðum og ábyrgri hugsun.
Ég er sjálfstætt starfandi hárgreiðslukona, og hef lengi hugsað um að taka inn nýja vörulínu sem er með góð gæði en jafnframt skemmtileg, spennandi og falleg.
Þegar ég fór að velta næstu skrefum fyrir mér tók ég eftir hversu margar gæðavörur fá aldrei að njóta sín. Vörur sem eru fullkomlega nothæfar, en hafa skipt um umbúðir, verið hættar í sölu eða einfaldlega ekki fengið pláss. Þar kviknaði hugmyndin að Amaría.
Nafnið Amaría er mér sérstaklega kært. Það er sett saman úr mínu nafni Aðalheiður María og Aðalheiðar Grétu og Svanhildar Maríu sem eru ömmur mínar.
Amaría er því fyrst og fremst verslun fyrir vel valdar vörur með sögu. Hér gefum við vörum sem annars myndu sitja óseldar nýtt líf.
Hjá Amaría finnur þú vörur í takmörkuðu upplagi, eldri vörur, vörur með breyttar umbúðir, vörur sem eru hættar í sölu eða eru hluti af lagerhreinsun. Allt er valið með það að markmiði að minnka sóun og nýta það sem þegar er til.
Ég vinn eingöngu með íslenskum birgjum. Þannig styð ég við nærumhverfið og tryggi að vörurnar komi úr traustu fagumhverfi.
Úrvalið er síbreytilegt og engin tvö innkaup eru eins. Þegar vara klárast, kemur hún oft ekki aftur.
Þetta er upphafið við byrjum á því sem er til nú þegar.
Um mig
Að baki Amaría stend ég, Aðalheiður María, þriggja barna móðir, hárgreiðslukona. Ég er gift frábærum manni sem stendur alltaf við bakið á mér og styður mig í öllu sem ég tek mér fyrir hendur. Amaría er byggð á gildum sem skipta mig máli: trausti, ábyrgð og virðingu fyrir því sem þegar er til.